Stefnir í enn eitt metið í fjölda útskrifta í sögu Háskólans á Bifröst

Síðastliðinn laugardag brautskráðust 213 nemendur frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þetta var fjölmennasti hópur útskriftarnema í rúmlega hundrað ára sögu skólastarfsins. „Þessi fjölmenni hópur ber vitni um þann mikla vöxt og kraft sem einkennt hefur háskólann á síðustu misserum,“ segir í tilkynningu.