
Júlíus Már við vinnu sína í síðustu viku þar sem veiðarfærin fyrir Sigurborgu SH voru gerð tilbúin. Ljósmyndir: tfk
Nóg að gera í Netagerð G.Run
Það var mikil handagangur í öskjunni þegar fréttamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn á netaverkstæðið í Grundarfirði í vikunni sem leið. Þar voru starfsmenn að útbúa veiðarfærin fyrir Sigurborgu SH auk þess að þjónusta Guðmund SH sem beið við bryggju. Yfirleitt er nóg um að vera hjá starfsmönnum Netagerðarinnar og taka þeir brosandi á móti þeim verkefnum sem til þeirra berast.