
Kristján skipstjóri á Hróa landar grásleppu – myndasyrpa
Í Stykkishólmi er gjarnan líf og fjör þegar verið er að landa fiski og vekur það mikla athygli ferðamanna, erlendra sem innlendra. Blaðamaður Skessuhorns var staddur á höfninni einn góðviðris dag nýverið þegar báturin Hrói SH kom að landi með góðan slatta af grásleppu. Kristján, skipstjóri á Hróa, baðst undan viðtali enda í nægu að snúast við löndun, þrif á körum og báti eftir góðan túr. Ingvar sonur hans gaf sér tíma til að spjalla við blaðamann þar sem hann var að aðstoða föður sinn, en hann sá um að stjórna löndunarkrananum. Gerði hann það af mikilli mýkt og leikni. „Ég er bara að hjálpa pabba. Þegar ég er ekki að vinna á golfvellinum þá er ég á grásleppunni með honum. Aðal atvinnan mín er umsjón og viðhald á golfvellinum í Stykkishólmi,“ sagði Ingvar. Veistu hvað þetta er mikið sem pabbi þinn kom með að landi núna, spyr blaðamaður. „Nei, en þetta eru um það bil átta kör þannig að þetta gæti verið um 1,6 tonn,“ sagði Ingvar Örn glaðbeittur á svip.