Sátan mætir aftur í Hólminn

Rokkhátíðin Sátan, sem stendur yfir í þrjá daga, fer fram dagana 4. til 6. júní næst komandi í Stykkishólmi. Hátíðin var fyrst haldin sumarið 2024. Þetta er því í þriðja sinn sem hún fer fram. Forsvarsmenn Sátunnar leggja áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval af fremstu rokkhljómsveitum Íslands, í bland við úrvalssveitir frá erlendri grundu. Hópurinn sem stendur á bak við Sátuna samanstendur af þungarokksunnendum og tjónlistarfólki sem hefur verið virkt í íslensku senunni í allt að 30 ár og hefur mikla reynslu af því að halda tónlistarhátíðir og tónleika, ásamt almennu tónlistarbrölti