Ómar Hafsteinn Magnússon sér um þjónustu við strandveiðisjómenn á Akranesi. Ljósm. mm

Helmings fækkun strandveiðibáta á Akranesi vegna lokunar ganganna

Á síðasta ári voru 45 strandveiðisjómenn sem völdu að gera út frá Akranesi. Auk heimamanna komu flestir þeirra lengra að og sögðust fagna því að gera þaðan út enda stutt á miðin og lítil löndunarbið. Á þessari vertíð bregður svo við að helmingi færri völdu að nota hina góðu aðstöðu sem til staðar er og gera út frá öðrum stöðum. Ómar Hafsteinn Magnússon sér um löndun og þjónustu við smábátasjómenn. Hann segir að nú séu einungis 22 sem geri út til strandveiða frá Akranesi. „Stærsti hluti skýringar fyrir þessari fækkun er sú að Hvalfjarðargöngin voru lokuð allar næturnar í maí, fyrsta mánuð strandveiðanna. Karlarnir að sunnan hreinlega nenntu ekki að aka Hvalfjörðinn til að komast hingað og ákváðu því að gera út frá öðrum höfnum. Sumir fóru á Arnarstapa, aðrir í Hafnarfjörð eða á aðra staði. Þetta er náttúrlega sorgleg þróun, en engu að síður staðreynd,“ segir Ómar.