
Svipmynd frá fyrra útkallinu í gær. Ljósm. Landsbjörg
Björgin í tveimur útköllum í gær
Um hádegi í gær var áhöfn björgunarskipsins Bjargar í Rifi boðuð út á hæsta fjórgangi vegna elds um borð í fiskibát, eins og fram kom í frétt hér á vefnum. Rétt um hálftíma eftir að gengið hafði verið frá skipinu í höfn barst annað útkall, í þetta sinn vegna aflvana báts vestur af Öndverðarnesi. Lítil hætta var á ferðum, veður var gott en draga þurfti bátinn til hafnar.