Starfsfólk skiptist á um að prófa notkun slökkvitækja. Ljósm. gsp

Æfðu notkun slökkvitækja

Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi fékk nýverið stutta fræðslu um notkun slökkvitækja og viðbrögð við eldsvoða. Markmið fræðslunnar var að efla öryggisvitund og auka þekkingu á réttum viðbrögðum ef eldur kemur upp.