Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr starfi vetrarins. Hér á tónleikunum Toska fríkar út!

Tónlistarskólinn á Akranesi 70 ára – en öflugur og síungur

Í Tónlistarskólanum á Akranesi er mjög öflugt starf, en þar eru að jafnaði um 350 nemendur, flestir af Akranesi en einnig er skólinn með samstarfssamning við Hvalfjarðarsveit. Starfið núna afmælisveturinn 2025-26 hefur verið mjög líflegt og fjölbreytt. Fljótlega eftir skólabyrjun var haldið stórt strengjamót á Akranesi þar sem nemendur, kennarar og foreldrar tóku vikan þátt og voru þátttakendur á fjórða hundraðið! Virkilega glæsilegt mót og Skagamönnum til sóma hvernig til tókst.

Í nóvember var svo haldið formlega upp á 70 ára afmælisdaginn með afmælisveislu í skólanum, en það hófst á dagskrá í Tónbergi með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Á eftir var opnuð sýning í anddyrinu þar sem farið er yfir sögu skólans í máli og myndum og í anddyrinu voru einnig kaffiveitingar og tónlistaratriði þar sem fjölbreytt námsframboð skólans var kynnt.  En skólinn býður upp á kennslu á nær öll hljóðfæri auk söngs og auk þess eru krílanámskeið fyrir allra yngstu börnin, söngleikjanámskeið og núna nýjast hjá okkur er tónlistarkennsla fyrir fólk úr Fjöliðjunni.

Sýningin um sögu skólans er enn uppi og öllum velkomið að koma og skoða hana hjá okkur.

Síðar í nóvember vor stórtóleikar skólans; „Toska fríkar út á afmælinu“.  Þar voru Skagalög þema tónleikanna, auk nokkurra vel valinna klassískra laga sem hafa prýtt tónlistarsöguna.  Ný tónlist var líka á dagskrá bæði á afmælisdaginn og á afmælistónleikunum, því við höfðum samkeppni um Toska-lagið og bárust nokkrar tillögur og voru tvö af lögunum flutt við þetta tilefni. Þannig að Skagalögum er enn að fjölga og kraftur í tónskáldum bæjarins. 

Nú á vordögum spilaði svo hljómsveit skólans ásamt elsta árgangi í leikskólunum okkar stórtónleika í íþróttahúsinu á Vesturgötu.  Tónleikarnir voru undir yfirskriftinni Söngvavor, og var flutt tónlist eftir Dr. Gunna.  Glæsilegt verkefni sem við munum vonandi endurtaka á næsta ári.

Einnig tók „gamla“ lúðrasveitin okkar sig til og æfði glæsilegt prógramm og hélt tónleika fyrir troðfullu húsi 22. mars og sýndu að þau hafa engu gleymt. Frábær hópur þar sem margir eru enn áberandi í tónlistarlífinu á Skaganum og þó nokkrir á landsvísu.

Skólinn tók þátt í Nótunni, samstarfsverkefni Tónlistarskólanna, sem var að þessu sinni á Patreksfirði í apríl. Góður hópur nemenda og kennara fór á Patreksfjörð og stóð sig með prýði. 

Núna á vordögum eru vortónleikar og hægt að mæta á þá, eitthvað fyrir alla og allir eru velkomnir!

Það er bjart yfir tónlistarlífinu á Akranesi og íbúar mega vera stoltir af Tónlistarskólanum sínum, kennurum skólans og því frábæra starfi sem þar fer fram og þótt skólinn sé nú formlega kominn á áttræðisaldur, þá eru engin ellimerki á honum og við bjóðum öllum að koma til okkar á opinn dag miðvikudaginn 27. maí milli 16:00 og 18:00 og forvitnast um starfið og prufa alls konar hljóðfæri, skoða sýninguna og fá sér kaffisopa.

Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri