
Stýrivextir hækkaðir um fjórðung úr prósentu
Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti úr 7,50 í 7,75%, eða um fjórðung úr prósenti. Nefndin vísar til viðvarandi verðbólgu yfir fimm prósentum og aukinna verðbólguvæntinga til skamms tíma. Seðlabankinn spáir minni hagvexti og meira atvinnuleysi en áður. Spáð er að hagvöxtur verði 1,6% í ár. Það er öllu lakara en í spánni í febrúar þegar bankinn spáði 2% hagvexti. Muninn er helst að finna í minnkandi vexti innlendrar eftirspurnar. Bankinn spáir 2% meðalhagvexti næstu tvö ár. Merki eru um að dregið hafi úr umsvifum á vinnumarkaði, störfum sé hætt að fjölga og atvinnuleysi hafi aukist. Þessu til viðbótar benda ráðningaráform fyrirtækja til þess að áfram hægi á vinnumarkaði næsta misserið.