
Rafiðnaðarsambandið styrkti félög á Snæfellsnesi
Á dögunum hélt Rafiðnaðarsamband Íslands sambandsstjórnarfund í Stykkishólmi í þriðja sinn á síðustu 20 árum. Á fundum sem þessum er hefð fyrir því að styrkja góð málefni í nærumhverfi fundanna og að þessu sinni voru veittir styrkir til björgunarsveitanna á Snæfellsnesi 500.000 kr. til hverrar, Umf. Snæfells fékk 500.000 krónur og Lúðrasveit Stykkishólms sömu upphæð. Á myndinni eru fulltrúar styrkþega ásamt Jakobi Tryggvasyni formanni RSÍ.
„Það er ánægjulegt þegar hægt er að halda svona stóra fundi í Stykkishólmi og njóta þeirrar góðu þjónustu sem Fosshótel Stykkishólmur býður upp á. Fundarfólk var himinlifandi með allan viðurgjörning og aðstöðu,“ segir í tilkynningu frá Rafiðnaðarsambandinu.