
Skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku úr hryssum
Matvælastofnun hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum í samræmi við lög um velferð dýra og reglugerð um vernd dýra notuð í vísindaskyni. Starfsleyfið gildir til næstu tveggja ára. „Ákvörðunin byggir á heildstæðu mati á þeim gögnum sem koma fram í umsókn Ísteka ásamt viðbótar upplýsingum sem óskað var eftir frá fyrirtækinu. Leyfið er einungis gefið út til framleiðslu PMSG (eCG) fyrir notkun þar sem staðganga annarra lyfja er ekki vísindalega fullnægjandi,“ segir í tilkynningu. Þá er sett inn viðbótarskilyrði til að fyrirbyggja blóðleysi einstakra hryssa. „Stofnunin áskilur sér rétt að endurskoða leyfið ef frekari upplýsingar komi fram á starfsleyfistíma, m.a. í yfirstandandi áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um velferð blóðmera.“