Opinn fyrirlestur um næringu sem skiptir máli

Velferðarnefnd og öldungaráð Ólafsvíkur hafa tekið höndum saman og bjóða upp á fyrirlestur í Félagsheimilinu Klifi í dag, 13. maí -  kl. 17:00. Fyrirlesturinn ber heitið „Næring sem nærir“ en fyrirlesari er næringarfræðingurinn Elísabet Reynisdóttir. Hún er með meistaragráðu í næringarfræði, næringarþerapisti frá CET og þaulreyndur fyrirlesari sem hefur leitt þúsundir manna í átt að sterkari heilsu og bættri líðan. „Hún þekkir áskoranir af eigin raun eftir alvarleg veikindi og hefur byggt upp aðferðir sem virka og hún miðlar í fyrirlestrum og námskeiðum,“ segir í tilkynningu sveitarfélagsins“. Hvað ef betri næring gæti gjörbreytt orku þinni, líðan og gleði í daglegu lífi?