
Við Hraunfossa í Borgarfirði. Ljósm. mm
Náttúran sem fyrr helsta aðdráttarafl fyrir ferðamenn
Út er komin ný samantekt úr landamærakönnun Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna fyrir árið 2025. Líkt og niðurstöður fyrri kannana hafa sýnt hafði náttúra landsins mest áhrif á ákvörðun ferðamanna um að heimsækja Ísland, en 86% sögðu hana hafa haft mikil áhrif. Náttúrutengd afþreying (61%), áhugi á norðurslóðum (47%) og Ísland sem öruggt ferðamannaland (40%) voru einnig meðal þeirra þátta sem flestir sögðu hafa haft mikil áhrif. Þá sögðu 29% að meðmæli vina og ættingja hefðu haft mikil áhrif, 22% nefndu loftslag og 20% íslenska menningu og Íslendinga almennt.