Íris María Leifsdóttir.

Opnar sýninguna Ryðverk í Norska húsinu um næstu helgi

Íris María Leifsdóttir opnar sýninguna Ryðverk, í Norska húsinu í Stykkishólmi laugardaginn 16. maí kl. 14-16. Lokadagur sýningarinnar verður 16. júní. Ryðverk Írisar Maríu Leifsdóttur eru samvinna listamanns, veðurs og tíma. Járnplöturnar standa undir berum himni þar sem úrkoma og önnur veðurskilyrði vinna á málminum og þannig er hvert verk bundið þeim tíma og stað þar sem eyðingarmáttur náttúrinnar hefur mótað það. Útkoman er því jafn ófyrirsjáanleg og tíðarfarið sem hún endurspeglar.

Opnar sýninguna Ryðverk í Norska húsinu um næstu helgi - Skessuhorn