Myndin er tekin yfir landi Hvassafells. Við hraunið fellur til töluvert lindarvatn, sem aðallega rennur í Hvassafellstjörn. Vatnsmagn sem rennur úr tjörninni hefur verið mælt 40-50 sekúndulítrar. Mikið neysluvatn er einnig að finna á Brekku, þarnæstu jörð fyrir neðan. Ljósm. ml

Veitur skoða neysluvatn í landi Brekku og Hvassafells

Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar í síðustu viku var afgreidd umsókn Veitna um framkvæmdaleyfi til gerðar könnunargryfja í landi Brekku og Hvassafells í Norðurárdals vegna neysluvatnsrannsókna. Lagt er upp með að könnunargryfjurnar verði um þriggja metra langar og allt að tveggja metra breiðar og eins djúpar og unnt er að komast með gröfu. Nú skal freista þess að meta innrennsli vatns með brunndælu ef nægt vatn kemur inn í gryfjurnar. Áður en lokað verður aftur fyrir gryfjurnar verður komið fyrir götuðu röri úr plasti þar sem komið verður fyrir vatnsborðssíritum sem munu fylgjast með breytingum á vatnshæð í áreyrunum í sumar. Er um að ræða rannsóknir til þess að meta fýsileika vatnsbólsgerðar á jörðunum.