
Skýrsla gefin út um banaslys á sjó
Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur birt skýrslu um atvik sem varð 30. júní á síðasta ári þar sem strandveiðibáturinn Ormurinn langi AK-64 sökk suðvestur af Blakksnesi á landleið til Patreksfjarðar. Magnús Þór Hafsteinsson eigandi var um borð ásamt hundi sínum. Þeir létust báðir. Í skýrslunni er bent á nokkra annmarka sem spanna allt frá ófullnægjandi skoðunum til órekjanlegra breytinga sem gerðar höfðu verið á bátnum. Þá er ljóst að Samgöngustofa hefur þurft að taka ýmsa verkferla og vinnubrögð til gagngerrar endurskoðunar í kjölfar slyssins. Fram kemur að þennan dag var norðan 4-6 m/sek og sjólag slæmt. Maður á nærstaddum báti reyndi að koma Magnúsi til bjargar í sjónum en tókst ekki að ná honum um borð. Sigldi hann rólega til móts við björgunarskipið Vörð II sem lagði af stað frá Patreksfirði eftir að útkall barst. Áhöfn Varðar II tók manninn um borð, hóf endurlífgunartilraun og var henni haldið áfram þar til skipið kom til hafnar en þá tóku læknar við. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og úrskurðuð dánarorsök var örmögnun.