
Hér er báturinn kominn í tog og haldið til hafnar. Ljósm. BA
Fyrsta útkallið á Kristrúnu á Bjargi
Klukkan 18 í gær var Kristrún á Bjargi, björgunarskip Björgunarfélags Akraness, kölluð út vegna leka í vélarrúmi á fiskibáti sem var staddur 13 sjómílur vestur af Akranesi. Um tíu mínútur tók að manna skipið og skömmu fyrir klukkan 19:00 var björgunarskipið komið að fiskibátnum, búið að stöðva lekann og báturinn kominn í tog. Skipin komu svo að bryggju á Akranesi kl. 21:18. Þetta er fyrsta útkallið á Kristrúnu á Bjargi eftir að skipið kom til nýrrar heimahafnar á Akranesi. Að sögn björgunarfélagsmanna tókst aðgerðin mjög vel og mikil ánægja er með skipið.