
Hrossin vel viljug þegar komið var niður á sand. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson
Dreyrafólk fagnaði sumri á Höfða og Langasandi
Löng hefð er fyrir því að félagsmenn í Hestamannafélaginu Dreyra á Akranesi og Hvalfjarðarsveit fari á sumardaginn fyrsta frá Æðarodda og á Langasand. Leyfa þeir hestunum að spretta úr spori og dýfa fótunum í sjóinn. Komið er við hjá Hjúkrunarheimilinu Höfða þar sem íbúum er færður blómvöndur. Tæplega tuttugu voru í ferðinni að þessu sinni, en oft hefur hópurinn verið stærri. Menn og hross nutu dagsins í ágætu veðri en fremur kaldri sumarbyrjun.