Hjónin með Dalahvítlauk eru meðal þeirra sem kynna og selja matvæli á markaðinum. Ljósm. úr safni

Dalaþema á matarmarkaði á Breið á miðvikudaginn

Miðvikudaginn 29. apríl verður blásið til markaðar í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi milli klukkan 16:00 og 18:00. Þá koma framleiðendur úr Dalabyggð með vörur sínar til að segja frá, gefa smakk og selja. „Dalirnir eru þekkir fyrir fallega náttúru, grösuga dali, stórbrotna sögu og mikilfenglega menningu - en líka stórkostlegan mat,“ segir í tilkynningu.

„Nú fer hver að verða síðastur að næla sér í íslenskar gulrætur og heppnin er með þeim því á markaðinum munu Dalarætur mæta með síðustu sekkina sína. Skagamenn þekkja hvítlaukssaltið frá Dalahvítlauk og nú hefur heldur betur bæst í hvítlauksvörur frá þeim; hvítlauksolía, hvítlaukskonfit, hvítlauksmauk og fleira. Rjómabúið Erpsstaðir mætir með skyr, brodd og ostana sína. Frá Ásgarði kemur grillkjöt, snakkpylsur og kartöflur. Urður Ull verður með handunnið ær- og lambsband af Dalanna fé. Gamla Læknahúsið framleiðir heilnæmar skyrsápur úr skyri frá Erpstöðum og einnig vanilludropa sem búið er að nostra við. Halla bóndi í Ytri-Fagridal mætir með geitakasmír af geitunum sínum sem ku vera mýkri en loft. „Fleiri gætu bæst við, eina sem við vitum er að það mun verða veislunni margt í,“ segir í tilkynningu um þetta upphaf matarmenningarviðburða á Breið við Bárugötu 8-10 á Akranesi.