Linda Rún og Guðbjartur Þór fóru fyrir fánareið nemenda á Mið-Fossum. Ljósmyndir: LbhÍ

Vel heppnaður Skeifudagur á Mið-Fossum og Hvanneyri

Skeifudagurinn, keppni nemenda í hrossarækt III við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, fór fram á Mið-Fossum og Hvanneyri fyrsta dag sumars. Meðal gesta var Halla Tómasdóttir forseti Íslands sem ávarpaði gesti. Skeifudagurinn hefur fyrir áratugum skapað sér sess sem einn af hápunktum skólastarfsins á Hvanneyri. Dagurinn einkenndist af mikilli gleði, góðri reiðmennsku og fjölmenni bæði á Mið-Fossum og á Hvanneyri. Á annað hundrað manns tók þátt í deginum og var stemningin til fyrirmyndar, enda veðrið með besta móti þetta árið.