
Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. ráðherra, hefur verið skipuð í embætti sendiherra til næstu fimm ára. Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að skipunin taki gildi 1. ágúst næstkomandi en samkvæmt heimildum Vísis.is stendur til að hún verði sendiherra í London. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skipar í embætti sendiherra. Í tilkynningunni segir að ráðgefandi hæfnisnefnd um utanríkisþjónustu Íslands hafi metið Þórdísi vel hæfa til að gegna stöðu sendiherra.