
Skagamenn leika fyrsta heimaleikinn annað kvöld
Karlalið ÍA í Bestu deildinni í fótbolta tekur á móti KA annað kvöld, miðvikudaginn 22. apríl, en þetta er fyrsti heimaleikur liðsins í deildinni á þessu ári. Leikið verður í Akraneshöllinni þar sem grasvöllur liðsins er ekki tilbúinn fyrir átök sparkmeistaranna. „Vöxtur á grasinu er ekki nægjanlegur, yfirborðið óslétt og völlurinn mjög blautur. Ljóst er að leikur á vellinum á þessum tímapunkti gæti skaðað hann til lengri tíma,“ segir í tilkynningu frá félaginu.