Hluti þeirra sem fengu viðurkenningar. Ljósm. heþ

Íþróttamaður UMFR og aðrar viðurkenningar

Á sunnudaginn var uppskeruhátíð Ungmennafélags Reykdæla haldin í Logalandi. Þar voru nokkrir af ríflega 80 iðkendum verðlaunaðir fyrir árangur á liðnu ári. Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í kjöri á íþróttamanni ársins og fyrir mestar framfarir í þeim greinum sem hægt er að æfa hjá félaginu. Í vetur voru skráningar að meðaltali 136 hjá félaginu þar sem margir æfa fleiri en eina grein.