Vatnið beljar fram við ræsið. Ljósm. JG

Flóð úr Hrafnagili í Lundarreykjadal

Í fyrrinótt varð vatnsflóð í Hrafnagili, sem er dálítið austan við Lund í Lundarreykjadal. Ábúendur vöknuðu við torkennilegan hávaða, fóru að gá hverju sætti og sáu að hlaup var úr gilinu. Þetta kom fólki á óvart í ljósi þess að ekkert hafði rignt dagana á undan. Þegar leið á nóttina varð ljóst að stefndi í vegaskemmdir vegna mikils grjótskriðs í læknum sem fyllti upp í ræsið í veginum svo ekki komst allt vatnið í gegnum það. Var því Vegagerðin upplýst um málið og kallaði til Tryggva Sæmundsson verktaka á Hálsum til að moka úr ræsinu. Þegar komið var fram á dag fór vatnið heldur að sjatna en var þó enn talsvert mikið.

Jón Gíslason bóndi á Lundi segist í skeyti til Skessuhorns hafa farið í göngutúr upp á hálsinn í gærmorgun til að sjá hvað hefði valdið þessu flóði og tók þá meðfylgjandi myndir. Hann segir að uppi á hálsinum sé tjörn sem Hrafnatjörn heitir og úr henni rennur vatnið í Hrafnagilið. Jón segir að lækurinn renni í farvegi sem gjarnan er 2-5 metrar á dýpt þar til komið er fram á brún fjallsins og gilið tekur við. Sýnilega hefur farvegurinn fyllst af snjó í austanbyl fyrir nokkrum vikum. „Í vatnavöxtum líklega 7. apríl undruðumst við hjónin hversu lítið vatn var í Hrafnagilinu og datt mér þá strax í hug að farvegurinn uppi á hálsi hefði stíflast og var að hugsa um að kíkja þangað en varð ekki af, því miður. Hef svona hálft í hvoru búist við flóði síðan. Mér sýndist vatnsborð tjarnarinnar vera búið að lækka um eina 30 cm, tjörnin er líklega um 20 hektarar að stærð og því má ætla að á 10 tímum hafi runnið 60 þúsund rúmmetrar úr tjörninni, sem gerir þá að jafnaði ca. 1,5 rúmmetra af vatni á sekúndu, örugglega talsvert meira þegar mest var,“ skrifaði Jón.

Horft niður frá ósnum

Farvegur gilsins hefur stíflast af snjó í austanbyl 7. apríl

Hér var farið að sjatna í gilinu

Gatkletturinn stóð flóðið af sér