Búið að festa kaup á nýjum flygli í Dalabúð

„Söfnun til kaupa á nýjum flygli fyrir félagsheimilið Dalabúð í Búðardal hefur gengið afar vel og sýnir skýrt þann samhug sem býr í samfélaginu í Dölum. Verkefnið miðar sem fyrr að því að efla Dalabúð sem menningarhús og skapa betri aðstöðu fyrir tónlistarflutning og viðburði í héraðinu,“ segir Sigurbjörg I. Kristínardóttur sem er helsti hvatamaður þessa verkefnis.

Þegar hefur verið fest kaup á vönduðu hljóðfæri sem reyndir píanóleikarar hafa prófað og gefið afar góð meðmæli. Enn vantar þó loka hnykkinn til að ljúka fjármögnun verkefnisins og er því áfram leitað eftir stuðningi frá velunnurum öflugs tónlistarlífs í Dölunum.

„Kvenfélögin Fjóla og Kvenfélagið Þorgerður Egilsdóttir hafa nú lagt verkefninu lið með afar rausnarlegum hætti og eru þeim færðar sérstakar þakkir fyrir mikilvægt framlag sitt,“ segir Sigurbjörg. Hér á mynd má sjá fulltrúa þessara öflugu kvenfélaga með verkefnastjórn þeirri sem utan um fjáröflunina heldur.

Þeir sem vilja leggja verkefninu lið eða fá frekari upplýsingar geta haft samband við Sigurbjörgu Kristínardóttur í síma 864 7772 eða með tölvupósti á sibbo52@gmail.com Framlög til verkefnisins má leggja inn á söfnunarreikning í samstarfi við sönghópinn Hljómbrot: Kennitala: 420523-2030 Banki: 0133-15-13241