
Samgöngustofa gerir ekki kröfu um hindranaljós á 98 metra vindmælimastur
Nú er rúmur mánuður liðinn frá því að hindrunarljósið á toppi vindmælimasturs á Grjóthálsi í Borgarfirði slokknaði í eldingaveðri. Bent var á þetta í frétt Skessuhorns tveimur vikum síðar. Frá því 19. mars í vor hefur því ekkert hindrunarljós logað á toppi 98 metra hás mælimastursins. Mastrið var sett upp í byrjun ágúst á síðasta ári og er ætlað að mæla vind vegna hugmynda um vindmylluver í landi Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Hrjónur ehf. er félag landeigenda sem skráð er fyrir vindmælingunum.
Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns tóku íbúar á svæðinu eftir því að hindrunarljósið slokknaði eftir eldingaveður sem gekk yfir fimmtudaginn 19. mars. Forsvarsmenn verkefnisins tóku ákvörðun um að við uppsetningu mælimastursins væri á toppi þess blikkandi viðvörunarljós. Það er gert til að auðvelda flugmönnum í sjónflugi að sjá mastrið, en Grjótháls er meðal annars þekkt leið þyrla í sjúkraflugi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns ekki búið að setja mælimastrið inn í flugrita og vantar auk þess að merkja inn á sjónflugskort. Þetta tvennt eykur mikilvægi þess að hindrunarljós sé til staðar á toppi mastursins, þrátt fyrir að í reglum Samgöngustofu sé ekki gerð krafa um blikkandi ljós þar sem mastrið nær ekki 100 metra hæð. Eftirfarandi reglur gilda um möstur af þessari gerð:

Fjölmargir hafa sent ábendingar til Samgöngustofu um ljósleysi mælimastursins. Þeirra á meðal eru atvinnuflugmenn sem telja verulega hættu stafa af því að mastrið sé ekki sýnilegt flugmönnum í sjónflugi, þeirra á meðal eru þyrluflugmenn hjá Landhelgisgæslunni.
Skessuhorn sendi um liðna helgi fyrirspurn á Samgöngustofu vegna ljósleysisins. Eftirfarandi svar barst í morgun: „Samgöngustofa er upplýst um að mælimastrið sé ljóslaust og að viðgerð sé í farvegi. Kröfur sem unnið er eftir eru skv. ákvörðun nr. 1/2019 segir eftirfarandi varðandi litamerkingar, lýsingu og tilkynningu: „Mastrið sem um ræðir er 98 m hátt og því er ekki krafa um hindranalýsingu. Engu að síður tóku eigendur masturins þá ákvörðun um að setja ljós á mastrið. Mastrið var metið sem „hindrun utan áhrifasvæða flugvalla.“.“