
Aflétta ásþungatakmörkunum á NV svæði
Vegagerðin mun klukkan 14 í dag aflétta sérstökum ásþunga takmörkunum sem hafa gilt á Vestfjarðavegi 60 frá Dalsmynni að Flókalundi, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Borgarfjarðarbraut 50, Hvanneyrarvegi 511, sem og Hálsasveitarvegi 518, Snæfellsnesvegi 54, Vatnaleið 56, Stykkishólmsvegi 58, Útnesvegi 574, Skarðsstrandarvegi 590, Djúpvegi 61 frá Ísafirði til Bolungarvíkur. Verður þeim aflétt í dag mánudaginn 20. apríl kl. 14:00.
Breyting verður á Snæfellsnesvegi 54 frá Stykkishólmsvegi að Bíldhóli, (Heydalsvegi). Þar tekur sérstök ásþunga takmörkun við 7 tonn gildi frá kl. 14:00 í dag 20. apríl.
Áfram verða í gildi sérstakar ásþungatakmarkanir við 10 tonn á Innstrandavegi 68, Djúpvegi 61 á Þröskuldum til Ísafjarðar, einnig á Vestfjarðavegi 60, frá Flókalundi til Ísafjarðar, Þingeyrarvegi 622, Flateyrarvegi 64, Súgandafjarðarvegi 65, Akrafjallsvegi 51 frá Akranesvegi að Hringvegi. Staðan á þessum vegum er í skoðun áfram, staðan tekin að nýju á morgun.
Unnið er að opnun á Bíldudalsvegi 63 frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi 60, þegar sá vegur opnar munu gilda á honum ásþungatakmarkanir við 2 tonn.