
Skeifudagurinn verður sem fyrr á sumardaginn fyrsta
Hestamannafélagið Grani og Landbúnaðarháskóli Íslands bjóða fólk velkomið á dagskrá Skeifudagsins, fimmtudaginn 23. apríl. Hátíðin er uppskeruhátíð búfræðinema og á sér langa og merka sögu allar götur frá 1957. Dagurinn er hápunktur vetrarins þar sem nemendur sýna afrakstur vinnu sinnar við tamningar og þjálfun hrossa.
DAGSKRÁ – Sumardagurinn fyrsta, 23. apríl 2026
Staður: Reiðhöllin að Mið-Fossum og Ásgarður á Hvanneyri.
• 13:00 – Hátíðleg opnun: Fánareið og opnunaratriði.
• 13:10 – Ávörp: Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Eyjólfur Guðmundsson deildarforseti LbhÍ flytja kveðjur.
• 13:20 – Sýningaratriði og keppni: Nemendur í Reiðmennsku III sýna tamningatryppi sín og keppt er um Gunnarsbikarinn.
• 14:10 – Úrslit: A og B úrslit í Gunnarsbikarnum.
• 15:00 – Dagskrá lokið í reiðhöll.
• 15:15 – Verðlaunaafhending og kaffisala í Ásgarði: Skeifuhafi ársins 2026 krýndur, happdrætti Grana og glæsilegar kaffiveitingar til styrktar nemendafélaginu.
Opinn dagur á Hvanneyri
Samhliða Skeifudeginum verður opið hús í aðalbyggingu LbhÍ, Ásgarði, á milli kl. 16:00 og 18:00. Þar gefst áhugasömum kostur á að kynna sér námsframboð skólans, skoða aðstöðuna og ræða við starfsfólk og nemendur.
„Við hvetjum alla hestamenn, velunnara landbúnaðarins og fjölskyldur til að koma og fagna sumarkomu með okkur í hjarta Borgarfjarðar,“ segir í tilkynningu. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.