
Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri og Sævar Harðarson framkvæmdastjóri Skipavíkur skrifa undir samninginn. Ljósm. Stykkishólmur
Samið um uppbyggingu í Víkurhverfi í Stykkishólmi
Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsti í ágúst á síðasta ári eftir áhugasömum aðilum til viðræðna um samstarf við skipulag og uppbyggingu íbúðarsvæðis vestan Borgarbrautar í Víkurhverfi í Stykkishólmi. Skipavík ehf. sóttist eftir verkefninu og hefur í kjölfar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir bæjarráði, bæjarstjórn og skipulagsnefnd. Greint er frá því á upplýsingavef bæjarfélagsins að síðastliðinn mánudag var skrifað undir viljayfirlýsingu um uppbygginguna.