
Ragnar Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fangs og Akraborgar, segir samninginn tryggja framtíðarvöxt dýrafóðursframleiðslu. Ljósm. aðsend
Samið um framleiðslu dýrafóðurs fyrir bandarískt fyrirtæki
Fyrirtækin Fang og Akraborg eru til húsa við Kalmansvelli á Akranesi, bæði dótturfélög Lýsis hf. Framkvæmdastjóri beggja fyrirtækja er Ragnar Þór Gunnarsson. Fram kemur í tilkynningu frá Lýsi að Fang undirritaði nýverið stóran samstarfssamning við dýrafóðursrisann Nestlé Purina PetCare Company, sem er stærsti framleiðandi og seljandi dýrafóðurs í Bandaríkjunum. Varan er afrakstur tveggja ára ferlis sameiginlegrar vöruþróunar, prófana og ítrekaðra úttekta. Framleiðsla afurðanna mun eiga sér stað í hátæknivinnslu Fangs á Akranesi og byggir á mikilli þróunarvinnu sem hefur átt sér stað í gegnum tíðina og er í takti við stefnu Lýsis hf. um fullnýtingu sjávarafurða.