Stofnfélagar í Manga. Ljósm. Sigrún Ólafsdóttir

Sauðfjárræktarfélagið Mangi stofnað

Stofnfundur Sauðfjárræktarfélagsins Manga var haldinn í Lyngbrekku í gær. Félagið varð til við samruna fjárræktarfélaga sem tilheyrðu sex af gömlu sveitarfélögunum, en það eru Eyjahreppur, Kolbeinsstaðahreppur, Hraunhreppur, Álftaneshreppur, Borgarhreppur og Borgarnes. Eins og sést á myndinni var fundurinn vel sóttur, en fyrsta stjórn félagsins er skipuð fulltrúum allra hreppanna.