Framkvæmdir í gangi á Sementsreit

Þróttur hf. vinnur nú að gatnagerð á Sementsreit á Akranesi, en fyrirtækið hafði áður gert götur á A og B reit svæðisins. „Við hyggjumst láta klára gatnagerð á Sementsreitnum á þessu ári, fyrir utan yfirborðsfrágang og búa þannig í haginn þegar úr rætist á bygginga- og fasteignamarkaði,“ segir Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hjá Akraneskaupstað í samtali við Skessuhorn. Hann segir að nú sé unnið að niðurrifi vélaverkstæðis og spennistöðvar, húsum sem tilheyrðu fyrrum Sementsverksmiðju. Beðið verður með niðurrif skrifstofuhúss verksmiðjunnar, en á þeim stað er verið að vinna nýtt skipulag þar sem gert er ráð fyrir að ráðhús bæjarins verði byggt í tímans rás. Á reitnum gæti einnig orðið annað skrifstofurými fyrir hið opinbera og heilsugæslustöð ef marka má viljayfirlýsingar sem ritað var undir skömmu fyrir þingkosningarnar 2024.