
Baldur mun ekki sigla yfir Breiðafjörð í byrjun næstu viku
Vegna bilunar í vél ferjunnar Herjólfs hefur Vegagerðin óskað eftir því að Breiðafjarðarferjan Baldur taki tímabundið við siglingum milli lands og Vestmannaeyja í byrjun næstu viku. Áætlað er að Baldur sigli suður fyrir land frá Stykkishólmi næstkomandi sunnudag og komi aftur nk. miðvikudagskvöld. Áætlað er að Baldur sigli samkvæmt venjubundinni áætlun frá Stykkishólmi á fimmtudaginn í næstu viku.
Senda þarf mótorinn úr ferjunni Herjólfi til viðgerðar í upphafi næstu viku. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, útskýrir í samtali við fréttavef Ríkisútvarpsins að Herjólfur geti siglt á takmörkuðu afli, en vél úr skipinu verður send til viðgerðar í Hollandi. „Við erum núna svona þrjá og hálfan upp í fjóra tíma með siglingu sem tekur venjulega þrjá tíma. Vonandi þegar Landeyjahöfn opnar þá verður það ennþá minna rask,“ sagði Ólafur Jóhann. Landeyjahöfn er lokuð og óvíst er hvenær hún verður opnuð aftur. Á meðan Baldur siglir milli lands og Vestmannaeyja verða enga siglingar að Brjánslæk eins og alla jafnan. Í hans stað mun báturinn Ingólfur sigla milli Stykkishólms og Flateyjar á Breiðafirði.