Opnaði stafræna tilkynningagátt um netglæpi

Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra opnaði í gær nýja stafræna tilkynningagátt og fræðslusvæði um netglæpi á vef lögreglu. Með gáttinni er almenningi, fyrirtækjum og stofnunum gert kleift að tilkynna netglæpi á einfaldan, öruggan og aðgengilegan hátt. Á fræðslusvæðinu má svo nálgast upplýsingar um hvað ber að varast og hvernig hægt er að verja sig fyrir slíkum glæpum.