
Dekkjatörnin hófst í byrjun vikunnar
Samkvæmt laganna hljóðan er notkun nagladekkja óheimil frá og með deginum í dag, 15. apríl. Engu að síður búum við á Íslandi þar sem allra veðra er von, hvað sem dagatalið segir. Lögreglan beitir því bíleigendur ekki sektum fyrir að skarka á nagladekkjunum, svona til að byrja með. Framundan eru fremur mildir dagar og ástæða til að bíleigendur fari að huga að því að panta tíma og setja sumardekkin undir.