
Guðjón Jónasson vélfræðingur stýrir nú starfseminni í Vélabæ í Borgarfirði. Texti og myndir: mm
Blása lífi í starfsemi Vélabæjar í Borgarfirði
Bíla- og búvélaverkstæðið Vélabær ehf. í Bæjarsveit í Borgarfirði hvílir á gömlum merg. Fyrirtækið var upphaflega stofnað í júlí 1980 og þar voru lengst af mikil umsvif. Á liðnum árum dró heldur úr starseminni. Hluthafar í fyrirtækinu eru um hundrað talsins. Stjórn félagsins hefur nú ákveðið að blása lífi í glæðurnar. Nýverið var Guðjón Jónasson véliðnfræðingur ráðinn til að stýra starfseminni í Vélabæ og hóf hann störf í febrúar. Með honum á verkstæðinu starfa þeir Einar Magnússon og Anouar Ben Brahim, en þeir eru báðir búsettir í Túni.