
Sjálfkjörið verður í Snæfellsbæ
„Það er með auðmýkt sem við á D listanum tökum við þeirri niðurstöðu að verða sjálfkjörin til setu í bæjarstjórn Snæfellsbæjar fyrir komandi kjörtímabil. Það var ekki okkar vilji að einungis einn listi gæfi kost á sér til góðra verka í sveitarfélaginu en sú var niðurstaðan að þessu sinni,“ segir í yfirlýsingu frá D lista.
„Við tökum verkefninu af mikilli ábyrgð og munum sem fyrr leggja okkur fram við að vinna í þágu samfélagsins alls og vera í góðu sambandi við íbúana. Við viljum að íbúar finni fyrir því að rödd þeirra heyrist og þátttaka þeirra í mótun samfélagsins sé áfram sterk, þó svo að kosningar fari ekki fram að þessu sinni. Virkt samtal við íbúana bæði nú við upphaf kjörtímabilsins sem og á meðan á því stendur er okkur mjög mikilvægt. Við munum leggja upp með að halda íbúafundi þar sem íbúum gefst gott tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum að á kjörtímabilinu.
Við erum þegar byrjuð að undirbúa vinnu fyrir stefnumótun komandi kjörtímabils og það skiptir okkur miklu máli að íbúar taki þátt í þeirri vinnu með okkur. Stefnuskrá er það grunnskjal sem lýsir framtíðarsýn og helstu áherslumálum fyrir komandi kjörtímabil og er leiðarljós fyrir okkur bæjarfulltrúana á kjörtímabilinu. Stefnumótunarfundir verða auglýstir í bæjarblaðinu Jökli og á samfélagsmiðlum í næstu viku.
Við horfum björtum augum til framtíðar og hlökkum til að halda áfram að gera gott samfélag enn betra. Með samvinnu við íbúana getum við byggt áfram á þeim árangri sem náðst hefur og haldið áfram að vinna að sameiginlegum markmiðum okkar - að veita öfluga þjónustu, styðja við kröftugt atvinnulíf og tryggja að Snæfellsbær sé góður, aðlaðandi og fjölskylduvænn búsetukostur. Fjárhagslega sterk staða Snæfellsbæjar gefur okkur tækifæri til þess.“
Undir þetta rita Auður Kjartansdóttir, Eiríkur Böðvar Rúnarsson, Jón Bjarki Jónatansson, Júníana Björg Óttarsdóttir, Jóhanna Jóhannesdóttir, Urszula Zyskowska, Illugi Jens Jónasson og Sigrún Erla Sveinsdóttir.