
Íbúalistinn býður fram í Stykkishólmi
„Öflugur og fjölbreyttur hópur fólks úr samfélaginu stígur hér fram með sameiginlega sýn um sterkara samfélag, opna stjórnsýslu og ábyrga framtíðarsýn fyrir Stykkishólm,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum Íbúalistans í Stykkishólmi sem býður nú fram í sveitarfélaginu.
Í heild er listinn svohljóðandi:
Nr. 1 Sigurður Grétar Jónasson, rafvirki
Nr. 2 Rannveig Tenchi Ernudóttir, kynslóðablandari
Nr. 3 Kristján Hildibrandsson, grunnskólakennari
Nr. 4 Ólöf Inga Stefánsdóttir, sérfræðingur í gæða- og sjálfbærnimálum, formaður FAS
Nr. 5 Skarphéðinn Berg Steinarsson, viðskiptafræðingur
Nr. 6 Sólrún Ösp Jóhannsdóttir, grunnskólakennari
Nr. 7 Heiðrún Edda Pálsdóttir, starfsmaður þjónustumiðstöðvar
Nr. 8 Hjalti Hrafn Hafþórsson, leikskólaleiðbeinandi og námsmaður
Nr. 9 Snæbjörn Aðalsteinsson, iðjuþjálfi og sjúkraflutningamaður
Nr. 10 Eva Rut Ellertsdóttir, hársnyrtir, starfsmaður NPA og andlegur einkaþjálfari
Nr. 11 Steindór Hjaltalín Þorsteinsson, rafvirkjameistari
Nr. 12 Sigrún Birta Sturludóttir, í fæðingarorlofi
Nr. 13 Hrefna Frímannsdóttir, sjúkraþjálfari
Nr. 14 Guðmundur Valur Valtýsson, sjómaður.