
Bakslag í tekjum og fresta stækkun Uglukletts
Skuldsetning sveitarfélagsins Borgarbyggðar hefur aukist samhliða þeirri uppbyggingu sem verið hefur. Í fundargerð byggðarráðs 1. apríl síðastliðinn kemur fram að rekstur ársins 2025 hafi reynst þyngri en áætlun gerði ráð fyrir og skuldir því ívið hærri undir lok árs 2025 en áætlað hafði verið. „Á þessum tímapunkti metur byggðarráð það sem svo að hætt sé við að tekjur á árinu 2026 verði lægri en áætlun gerði ráð fyrir og er þar helst horft til framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og endurgreiðslna vegna fjárhagsaðstoðar. Því er tilefni til að rýna reksturinn, fjárfestingar og lántökur ársins með það fyrir augum.“ Þá kemur fram að rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði hafi verið 233 m.kr. undir áætlun á síðasta ári og skýrist frávik aðallega af 90 milljóna króna meiri hækkun lífeyrisskuldbindinga en áætlað hafði verið ásamt um 120 milljóna króna kostnaðarauka við fjárhagsaðstoð við langtímaflóttafólk, sem ekki hefur fengist greiddur úr ríkissjóði.