
Louise Lang að vinna við glerblástur.
Mánaðar löng glerhátíð skipulögð undir Jökli
Hátíðin Glóandi jökull verður haldin á Hellissandi vikurnar frá 24. júní til 19. júlí í sumar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Skipuleggjendur hátíðarinnar eru þær Louise Lang frá Þýskalandi, Fiona Byrne frá Írlandi og Laura Sonne Lund frá Danmörku. Um er að ræða listahátíð helgaða glerlist í heilan mánuð á Hellissandi. Boðið verður upp á fjölbreyttar sýningar og viðburði sem hverfast um bráðið gler. Hjarta hátíðarinnar verður færanlegi bræðsluofninn Niesenglass NG40 sem gerir lifandi glerblástur mögulegan á þessum fallega stað við rætur Snæfellsjökuls.