
Nú styttist í endanlega lokun 3G símkerfisins
Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og fjarskiptafyrirtæki landsins vekja athygli á að lokun 3G-farsímakerfa stendur yfir hjá öllum fjarskiptafyrirtækjunum. Lokanir hefjast á höfuðborgarsvæðinu 8. apríl næstkomandi. Í kjölfarið verður öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí.
Mikilvægt öryggisatriði
Ákveðin símtæki munu ekki geta hringt neyðarsímtöl í 112 þegar slökkt verður á 3G. „Það er því brýnt öryggisatriði að eigendur þeirra tækja sem fengið hafa SMS frá sínu fjarskiptafélagi, um að nauðsynlegt sé að uppfæra eða skipta út tæki sínu, bregðist við sem fyrst,“ segir í tilkynningu.
Í tengslum við þessa breytingu hefur verið útbúinn sjálfvirkur símsvari 1280 þar sem notendur geta athugað hvort símtækin þeirra geti áfram hringt neyðarsímtöl eftir að slökkt hefur verið á 3G-sendum. Eigendur eldri símtækja og/eða símtækja sem keypt voru erlendis eru sérstaklega hvattir til að hringja í 1280 til að athuga hvort tækið þeirra styðji við nýjustu tækni. „Það er mjög brýnt að fólk hringi alls ekki í 112 til að prófa samband, það getur skapað álag og hindrað að neyðarsímtöl nái í gegn.“
Öll farsímafélög loka 3G
Öll fjarskiptafyrirtæki landsins (Síminn, Nova og Sýn) eru að loka 3G-kerfunum á Íslandi. Sú vinna er í takt við þróunina á heimsvísu þar sem 3G-kerfin eru komin til ára sinna og standast ekki lengur kröfur nútímans um hraða og öryggi. Þau símtæki sem reiða sig á 3G-farsímakerfið munu missa samband og ekki geta framkvæmt símtöl þegar slökkt verður á síðustu sendunum.
Notendur þurfa að hafa samband við sitt fjarskiptafyrirtæki til að ganga úr skugga um að þeirra tæki styðji við nýjustu tækni. Nánari upplýsingar um lokun 3G, áhrif á notendur og leiðbeiningar um stillingar í símtækjum (VoLTE-stillingar) má finna á upplýsingasíðu Fjarskiptastofu: www.fjarskiptastofa.is/lokun