Fjalla um örnefni og fuglalíf á Breiðafirði

Kynningarfundur um örnefni og fuglalíf á eyjum og skerjum í Breiðafirði veður haldinn fimmtudaginn 9. apríl kl. 14 í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Náttúrufræðistofnun og Breiðafjarðarnefnd standa fyrir fundinum. Fundinum verður jafnframt streymt, en tengil á hann má finna á heimasíðu Dalabyggðar. Á fundinum verða flutt erindi um örnefni á eyjum Breiðafjarðar og lífríki þeirra, kortlagningu staðkunnugra og fuglalíf á svæðinu, auk þess sem fjallað verður um Örnefnasafn Árnastofnunar og verndun Breiðafjarðar. Dagskrá og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og aðgangur ókeypis.