
Guðlaug Erlendsdóttir. Ljósm. úr safni Skessuhorns
Guðlaug á leið til Grindavíkur
Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi, hefur verið ráðin skólastjóri í nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík. Sex sóttu um starfið. Stefnt er að skólahaldi í Grindavík næsta haust, að því gefnu að eftirspurn og aðstæður leyfi. Niðurstöður úr nýlegri forskráningu foreldra sýndu að hluti barnafjölskyldna sem áttu lögheimili í bænum fyrir rýmingu vilji snúa aftur heim.