Framkvæmdir við Borgarfjarðarbrú

Veitur hefja í apríl vinnu undir Borgarfjarðarbrú þar sem endurnýja og stækka á lagnir fyrir kalt og heitt vatn fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Framkvæmdin er samstarf Veitna, Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna Mílu og Ljósleiðarns og áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári.