
Mótmæla afnámi línuívilnunar og skelbóta
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hefur sent Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra ályktun um skelbætur og línuívilnun. „Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) lýsir yfir þungum áhyggjum af frumvarpi innviðaráðherra til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 þar sem lagt er til að fella brott línuívilnun og skel- og rækjubætur. Á haustþingi SSV 2025 var samþykkt ályktun, þar sem skorað var á stjórnvöld að tryggja að breytingar á lögum um stjórn fiskveiða grafi ekki undan samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra útgerða og að línuívilnun og skel- og rækjubætur verði hvorki skertar né lagðar af. Nú liggur fyrir frumvarp sem gengur þvert gegn þeirri ályktun sem samþykkt var samhljóða af sveitarfélögum á Vesturlandi og hefur verið kynnt þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Þá fara áformin þvert gegn því sem sveitarfélög á Vesturlandi lögðu áherslu á á fundi sveitarfélaganna með ríkisstjórn Íslands í Stykkishólmi í ágúst 2025.“