
Heimismenn aflýsa tónleikum á Akranesi í kvöld
„Vegna slæmrar veðurspár verðum við að fella niður tónleikana á Akranesi í kvöld,“ segir í tilkynningu frá Karlakórnum Heimi sem hafði auglýst tónleika í Tónbergi í kvöld. „En við stefnum ótrauðir á að bruna suður á laugardagsmorgun og syngja í Háteigskirkju klukkan 16.00. Skagafólki og öðrum Vestlendingum er bent á að enn má nálgast miða á Tix.is á tónleikana í Reykjavík.“