
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj
Bakslag í tekjuáætlun og fresta ákvörðun um leikskólabyggingu
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var til umræðu fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár og þá með tilliti til tekjuáætlunar hennar. Fram kemur að nú er útlit fyrir verulega lækkun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Við það bætist að útlit er fyrir ekki fáist endurgreiðslur úr ríkissjóði vegna fjárhagsaðstoðar til flóttafólks, sem lækkar aðrar tekjur sveitarfélagsins. „Í ljósi þessa felur byggðarráð sveitarstjóra að taka rekstrar- og fjárfestingaráætlun ársins til endurskoðunar,“ segir í bókun.