
Heiðursverðlaunahafarnir Anna Melsteð og Jósep Blöndal ásamt Grétu Sigurðardóttur skipuleggjanda hátíðarinnar. Ljósm. re
Þar sem samfélagið verður til
Júlíönuhátíð fór fram í þrettánda sinn í Stykkishólmi dagana 19.-21. mars og tókst afar vel. Hátíðin, sem hefur fest sig í sessi sem einn af helstu menningarviðburðum Vesturlands, bauð upp á fjölbreytta dagskrá þar sem bókmenntir, tónlist og myndlist voru í forgrunni.