
Til heiðurs Hotta frá Húsafelli
Snorrastofa og áhugafólk um borgfirsk fræði boða til samkomu í hátíðarsal gamla Héraðsskólans í Reykholti sunnudaginn 29. mars kl. 15-17 undir yfirskriftinni; „Til heiðurs Hotta frá Húsafelli.“
Dagskráin er helguð Þorsteini Þorsteinssyni (1925-2025) lífefnafræðingi og fræðimanni frá Húsafelli, sem gekk undir heitinu Hotti meðal ættingja og vina. Dagskráin verður í tali og tónum, sagðar sögur og farið með kvæði. Dagskrárstjórn annast Þorsteinn Björnsson, doktorsnemi í íslenskum fræðum og sonarsonur Hotta.
Meðal dagskrárliða verða svipmyndir úr Skessuhorni; þættir í minningu fræðimanns. Borgfirsk söng- og kvæðahefð sem byggir á söfnun Kristleifs Þorsteinssonar fræðimanns á Stóra- Kroppi. Meðal annars Snorri á Húsafelli, Kobbi og alþýðukveðskapur, með áherslu á druslukveðskap. Málflytjandi er Þorsteinn Björnsson og nýtur hann aðstoðar Karls Friðriks Hjaltasonar við söng- og kvæðadæmi. Í kaffihléi verður brugðið upp á sýningartjaldi gömlum myndum frá húsfellsku umráðasvæði, en einnig verða sýndar myndir við einstaka dagskrárliði. Á vængjum tónlistar er dagskrá sem Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Viðar Guðmundsson og þær Sigrún og Sigríður Þorsteinsdætur sjá um. Spilaðar verða frásagnir með Þorsteini af hljóðupptökum frá 2021–2025. Að lokinni dagskránni, sem er opin öllum, verður boðið upp á veitingar.