
Samfylkingin á Akranesi samþykkti framboðslista sinn
Á fundi Samfylkingarinnar á Akranesi í gærkvöldi var einróma samþykktur framboðslisti flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Listinn er blanda af nýjum frambjóðendum og reyndum. Oddviti hans er Sigurður Vopni Vatnsdal, ráðgjafi hjá Sjóvá, en Valgarður Lyngdal Jónsson fráfarandi oddviti gaf það út fyrr í vetur að hann sæktist ekki eftir endurkjöri, en skipar nú heiðurssæti listans. Bæjarfulltrúarnir Jónína Margrét Sigmundsdóttir og Kristinn Hallur Sveinsson skipa annað og þriðja sæti listans, Anna Sólveig Smáradóttir er í fjórða sæti, Jón Hjörvar Valgarðsson í fimmta og Katrín Valdís Hjartardóttir í sjötta sæti.
„Samfylkingin á Akranesi mætir til leiks með framboðslista sem skipaður er fólki á öllum aldri, með fjölbreytta þekkingu og reynslu af öllum hliðum samfélagsins okkar hér á Akranesi,“ segir í tilkynningu. „Frambjóðendur okkar starfa við hin ýmsu störf, bæði á einkamarkaði og hjá hinu opinbera, og hafa þá sameiginlegu sýn að til að þjónusta bæjarfélagsins við íbúa sína geti verið framúrskarandi hér eftir sem hingað til, þá þurfi hún að standa á stoðum öflugs og fjölbreytts atvinnulífs.“
Þá segir: „Samfylkingin leggur áherslu á fyrsta flokks þjónustu við íbúa, metnað í uppbyggingu þeirra mannvirkja sem hýsa þjónustuna og styrka fjármálastjórn bæjarins, byggða á skýrri stefnumótun til framtíðar. Samfylkingin gengur til kosninga í vor með þrjú meginmarkmið: Að lækka kostnað barnafólks, að hlúa að fólkinu sem byggði landið og að auðvelda rekstur og uppbyggingu með einföldun regluverks á öllum sviðum.“
Listinn í heild:
Nr. 1. Sigurður Vopni Vatnsdal, ráðgjafi hjá Sjóvá á Akranesi
Nr. 2. Jónína Margrét Sigmundsdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður í stuðningi við fólk með áfengis- og fíknivanda
Nr. 3. Kristinn Hallur Sveinsson, bæjarfulltrúi og sérfræðingur hjá Loftmyndum ehf.
Nr. 4. Anna Sólveig Smáradóttir, sjúkraþjálfari og varabæjarfulltrúi
Nr. 5. Jón Hjörvar Valgarðsson, umsjónarmaður Arnardals og nemi við HÍ
Nr. 6. Katrín Valdís Hjartardóttir, sviðsstjóri æskulýðsmála í Vesturlandsprófastsdæmi
Nr. 7. Björn Guðmundsson, húsasmiður og varabæjarfulltrúi
Nr. 8. Þóranna Hildur Kjartansdóttir, sjúkraliði
Nr. 9. Gunnþórunn Valsdóttir, leikskólakennari
Nr. 10. Örn Arnarson, grunnskólakennari
Nr. 11. Margrét Bjarnadóttir, tannfræðingur
Nr. 12. Ásbjörn Þór Ásbjörnsson, viðskipta- og markaðsfræðingur
Nr. 13. Agla Harðardóttir, sérfræðingur í gagnaþróun hjá Kviku Banka hf.
Nr. 14. Elvar Sigurjónsson, starfsmaður Ölgerðarinnar
Nr. 15. Gunnhildur Björnsdóttir, grunnskólakennari og leiðsagnarkennari
Nr. 16. Bjarni Vésteinsson, byggingafræðingur
Nr. 17. Ásta Egilsdóttir, kennari
Nr. 18. Valgarður Lyngdal Jónsson, bæjarfulltrúi og kennari
